Hver segir að Íslendingar séu ekki rasistar?!?!

Já nú er ekki von að ég spyrji. Samkvæmt fréttunum í kvöld á RÚV vilja Íslendingar aðeins svið af hvítum sauðum Woundering  Leggja golsótta sauði, mórauða, ja hvað þá svarta sauði ekki sér til munns LoL
Getur verið að þarna birtist hið innsta eðli Íslendinga? Að í raun og veru séum við upp til hópa fordómafull Whistling  Reyndar þegar ég hugsa um blessaðar kindurnar þótti mér þær golsótta alltaf svo ofsalega flottar, ætli ég myndi ekki velja þær, þ.e. ef ég gæti vinsað þær úr í fristinum út í búð Joyful

Kv. Dagbjört 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það var nebbla það! Mig hefur svo sem alltaf grunað það að Íslendingar séu rasistar hahahaha .......

Svava Björg Mörk (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 22:13

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Nú heyrði ég ekki þessa frétt en kemur hún ekki á óvart því að þegar ég var lítill forðaðist móðir mín alltaf fremur að fá svarta hausa og lappir til að svíða - af praktískri ástæðu: Það var erfiðara að sjá hvort búið væri að svíða dökk hár og því líklegra að eftir yrðu ósviðin hár til ama þegar farið að borða lappirnar.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 7.10.2007 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband